Handbolti

Níu mörk Snorra dugðu skammt

AP

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði níu mörk fyrir lið sitt GOG Svendborg í dönsku úrvalsdeildinni í gær, en það dugði liðinu ekki til sigurs gegn Silkeborg. GOG tapaði leiknum 35-31 og skoraði Ásgeir Örn Hallgrímsson 3 mörk fyrir GOG.

Skjern vann öruggan sigur á Mors Thy 35-26 þar sem Vignir Svavarsson skoraði 4 mörk fyrir Skjern. Þá skoraði Hannes Jón Jónsson tvö mörk og Fannar Þorbjörnsson eitt fyrir Frederica sem lá heima fyrir Holsterbro 29-21.

FCK er í efsta sæti deildarinnar eftir sjö umferðir með 13 stig, Arhus og Kolding hafa 10 stig í öðru til þriðja sæti og Silkeborg og GOG eru í fjórða til fimmta sæti með 9 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×