Enski boltinn

McLaren sagður vilja breytingar

Steve McLaren er undir nokkurri pressu sem landsliðsþjálfari og vill allan þann undirbúning sem hann getur mögulega fengið. Það fær hann ekki þegar keppnisfyrirkomulag ensku bikarkeppninnar er eins og það er í dag.
Steve McLaren er undir nokkurri pressu sem landsliðsþjálfari og vill allan þann undirbúning sem hann getur mögulega fengið. Það fær hann ekki þegar keppnisfyrirkomulag ensku bikarkeppninnar er eins og það er í dag. MYND/Getty

Steve McLaren er nú sagður allt annað en sáttur út í vinnuveitendur sína hjá enska knattspyrnusambandinu, en allt útlit er fyrir að 14 leikmenn í landsliðshóp hans verði uppteknir við að spila endurtekin leik í ensku bikarkeppninni - aðeins fimm dögum áður en enska liðið spilar afar mikilvægan leik í undankeppni EM.

Lengi hefur verið deilt um hvort spila eigi leiki í ensku bikarkeppninni á ný fari svo að sá fyrri endi með jafntefli. Helstu rökin á móti því að spila tvo leiki ef þarf er hið mikla álag sem leggst á leikmenn, ekki síst þegar jafn langt er liðið á tímabilið eins og nú. Man. Utd. og Middlesbrough þurfa að mætast á ný í bikarnum rétt eins og Chelsea og Tottenham en viðureignir þessara liða enduðu með jafntefli um helgina.

Í síðasta leikmannahóp McLaren voru alls 14 leikmenn frá þessum liðum og er ljóst að einn leikur til viðbótar á þessum tímapunkti eykur líkur á meiðslum lykilmanna landsliðsins. Áætlað er að spila síðari leikina þann 19. mars, sama dag og enska landsliðið á að koma saman fyrir leik gegn Ísrael þann 24. mars.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að McLaren hafi barið í borðið eftir að hafa horft upp á leikina tvo enda með jafntefli um helgina og krafðist breytinga á keppnisfyrirkomulagi bikarkeppninnar á næstu leiktíð. Ástæðan er sú að ef enska landsliðið á að ná árangri í stórmótum þarf að minnka álagið heima fyrir.

"Það er óhætt að segja að leikirnir hafa spilast á mjög óhentugan máta fyrir enska landsliðið," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins í dag. "Þetta hefur vissulega mikil áhrif á undirbúninginn fyrir leikinn gegn Ísrael en við þurfum að búa við einstakar aðstæður í leikjafyrirkomulagi hér á landi og það er enginn leið til að breyta þessu," bætti hann við.

Hvort að McLaren verði að ósk sinni á næstu leiktíð er þó talið afar ólíklegt, enda löng saga á bakvið núverandi fyrirkomulag ensku bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×