Handbolti

Arnór með sjö mörk í stórsigri FCK

Arnór Atlason
Arnór Atlason Mynd/Birkir Baldvinsson

Arnór Atlason skoraði 7 mörk í kvöld þegar lið hans FCK vann stórsigur á Arhus 38-28. Gísli Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir FCK og Sturla Ásgeirsson skoraði 1 mark fyrir Arhus. FCK er í efsta sæti deildarinnar en Arhus í því fimmta.

Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Skjern lögðu Helsingör á útivelli 29-23. Vignir Svavarsson skoraði 4 mörk fyrir Skjern og Jón Jóhannsson 1. Liðið er í sjöunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×