Körfubolti

Jafnt í hálfleik í Stykkishólmi

Staðan í leik Snæfells og KR í Stykkishólmi er jöfn 41-41 þegar flautað hefur verið til leikhlés í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Snæfell hafði yfir 21-11 eftir fyrsta leikhluta, en gestirnir tóku 10-0 rispu í upphafi þess næsta og hafa verið betri aðilinn síðan.

Brynjar Björnsson er stigahæstur KR-inga með 12 stig en þeir Jeremiah Sola og Skarphéðinn Ingason hafa skorað 6 stig. Hjá Snæfelli er Jón Ólafur Jónsson kominn með 10 stig og Sigurður Þorvaldsson er með 9 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×