Körfubolti

Dramatískur sigur Snæfells á KR

Snæfell vann í kvöld dramatískan sigur á KR 85-83 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta. KR-ingar voru betri aðilinn frá öðrum leikhluta og voru með pálman í höndunum í lokin. Það var hinsvegar Daninn Martin Thuesen sem stal senunni og tryggði heimamönnum sigurinn með langskoti þegar um þrjár sekúndur lifðu leiks.

Stigahæstir hjá Snæfelli:

Justin Shouse 21

Hlynur Bærings 16

Sigurður Þorvaldsson 16

Stigahæstir hjá KR:

Jeremiah Sola 15

Skarphéðinn Ingason 14

Darri Hilmarsson 12

Brynjar Björnsson 12




Fleiri fréttir

Sjá meira


×