Handbolti

Arnór ánægður með nýjan samning við FCK

Arnór fann sig vel í Danmörku í vetur
Arnór fann sig vel í Danmörku í vetur Mynd/Birkir Baldvinsson

Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason hefur framlengt samning sinn við danska liðið FCK um þrjú ár. Arnór sagðist í samtali við Vísi vera mjög ánægður með samninginn því sér liði mjög vel í Kaupmannahöfn. Aldrei hefði komið til greina að fara annað.

Arnór átti mjög gott ár með liðinu á síðustu leiktíð þar sem hann var valinn í úrvalslið dönsku úrvalsdeildarinnar og var með markahæstu mönnum. Arnór var aðeins búinn með eitt ár af upphaflegum tveggja ára samningi sínum við liðið.

"'Ég er eins ánægður og ég get orðið. Við vorum farnir að tala um það strax í desember að framlengja samninginn og það kom eiginlega aldrei annað til greina hjá mér en að framlengja. Maður hefði hugsanlega geta farið í einhverja stærri deild og meiri peninga, en það er alveg toppurinn að vera hérna í Kaupmannahöfn. Umhverfið hérna er til dæmis miklu þægilegra og persónulegra en ég kynntist til dæmis í Magdeburg og mér og fjölskyldunni líkar mun betur að vera hérna," sagði Arnór í samtali við Vísi í dag.

"FCK er stór klúbbur í Danmörku og er í mikilli uppbyggingu. Það eru að koma hingað menn frá Þýskalandi og Danirnir eru að koma hingað heim að spila. Við erum t.d. að fá leikmann sem spilaði stórt hlutverk hjá Kiel í fyrra og menn eins og Boldsen og Jeppesen eru að kjósa að koma til Danmerkur og það segir sína sögu um vöxtinn í danska boltanum.

Handboltinn er rosalega vinsælt sjónvarpsefni hérna og deildin er að fá pening út úr því þannig að það eru alltaf meiri og meiri peningar í þessu. Karlarnir eru líka farnir að taka fram úr konunum í þeim efnum hérna eftir að konurnar höfðu verið með hærri laun síðustu ár," sagði Arnór.

Hann segist ekki hafa hugsað mikið um fyrirspurnir sem bárust frá öðrum liðum því hann hefði verið ánægður hjá FCK. "Maður heyrði alltaf hitt og þetta en ég leyfði því aldrei að komast á það stig að ég færi að hugsa neitt um það. Mér liður vel hér. Ég fann það strax eftir einn tvo mánuði að hér vildi ég vera og ég held að ég hafi bæði komið félaginu á óvart og það mér," sagði Arnór alsæll með nýja samninginn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×