Fótbolti

Ótrúleg vika hjá Di Natale

Di Natale er búinn að vera í stuði í vikunni
Di Natale er búinn að vera í stuði í vikunni AFP

Antonio Di Natale hjá Udinese kórónaði frábæra viku í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 útisigri á toppliði Juventus í ítölsku A-deildinni. Natale skoraði bæði mörk Ítala í 2-1 sigri liðsins á Úkraínumönnum á miðvikudaginn. Roma er komið á toppinn í A-deildinni eftir 2-0 útisigur á Reggina og meistarar Inter lögðu Catania heima 2-0.

Claudio Ranieri þjálfari Juventus hafði einmitt talað sérstaklega um það á blaðamannafundi í gær að hans menn yrðu að gæta að framherjanum Di Natale eftir frábæra frammistöðu í landsleiknum í Úkraínu.  

Úrslitin á Ítalíu í dag:

Fiorentina - Atalanta 2-2

Napoli - Atalanta 2-0

Genoa - Livorno 1-1

Palermo - Torino 1-1

Inter - Catania 2-0

Juventus - Udinese 0-1

Reggina - Roma 0-2

Parma og Cagliari mætast í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×