Fótbolti

Stefán Þórðarson á heimleið

Skagamaðurinn Stefán Þórðarson hefur gefið það út að hann ætli að flytja aftur heim til Íslands eftir að leiktíð lýkur í 1. deildinni í Svíþjóð. Stefán er leikmaður Norrköping, sem er á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni, en honum þykir kominn tími til að breyta til.

Stefán sagði í samtali við sænska fjölmiðla að hann væri að verða of gamall í úrvalsdeildina þar í landi og ætlar þess í stað að flytja heim og fara að vinna hjá fjölskyldufyrirtækinu. Stefán hefur átt langan feril sem atvinnumaður þar sem hann hefur m.a. spilað mð Öster, Brann, Kongsvinger, Uerdingen og Stoke City. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×