Handbolti

Valdimar með níu mörk í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdimar Þórsson í leik með HK síðastliðið tímabil.
Valdimar Þórsson í leik með HK síðastliðið tímabil. Mynd/Anton

Valdimar Þórsson skoraði níu mörk fyrir HK Malmö í sænsku úrvalsdeildinni en liðið er enn án sigurs.

Guðlaugur Arnarsson skoraði tvö mörk í leiknum sem Malmö tapaði fyrir Alingsås, 32-29. Staðan í hálfleik var 14-14.

Malmö og Skövde eru einu liðin í deildinni sem eru enn án stiga eftir þrjár umferðir. Liðið hefur þó skorað aðeins fimm mörkum minna en andstæðingar sínir í leikjum liðsins til þessa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×