Handbolti

Hreiðar með flest varin skot í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hreiðar Levy Guðmundsson.
Hreiðar Levy Guðmundsson.

Hreiðar Levy Guðmundsson, markvörður Sävehof í sænsku úrvalsdeildinni, fer vel af stað.

Hann hefur varið flest skot allra markvarða í sænsku úrvalsdeildinni eftir þrjár umferðir, 53 talsins.

Sävehof er í þrijða sæti deildarinnar með fullt hús stiga, eins og Hammarby og H 43.

Næstur í röðinni kemur Richard Kappelin, markvörður Alingsås.

Hreiðar gekk til liðs við Sävehof í sumar frá Akureyri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×