Handbolti

Ragnar skoraði tíu í gær

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Óskarsson er langmarkahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar.
Ragnar Óskarsson er langmarkahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar. Nordic Photos / AFP

Ragnar skoraði átta mörk fyrir lið sitt, USAM Nimes, sem dugði þó ekki til sigurs gegn Chambery á útivelli.

Leiknum lauk með naumum eins marks sigri, 34-33, en Chambery er enn með fullt hús stiga í deildinni eftir fimm umferðir.

Nimes er í níunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fimm leiki.

Daniel Narcisse leikur með Chambery en hann gekk til liðs við félagið frá Gummersbach í sumar. Hann skoraði fimm mörk í gær en Cedric Paty fór á kostum og var markahæstur í liðinu með tólf mörk.

Ragnar er enn langmarkahæstur í frönsku deildinni með 47 mörk en næsti maður er með 33 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×