Handbolti

Ciudad Real með fullt hús stiga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson á fleygiferð.
Ólafur Stefánsson á fleygiferð. Nordic Photos / AFP

Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Ciudad Real sem vann Valladolid á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 29-27.

Ciudad Real hafði frumkvæðið allan leikinn en leikmönnum Valladolid tókst þó að minnka muninn í eitt mark undir lok leiksins. Nær komust þeir þó ekki og Ciudad tryggði sér tveggja marka sigur.

Ciudad er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir í spænsku deildinni. Barcelona getur jafnað þann árangur í dag með sigri á Aragon á útivelli.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×