Handbolti

Fjórtán íslensk mörk í Danmörku

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Eggertsson skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt í gær.
Sigurður Eggertsson skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt í gær. Mynd/Daníel

Tveir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær og lauk þeim báðum með jafntefli.

TMS og Skanderborg skildu jöfn, 25-25. Þorri Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir TMS og Sigurður Eggertsson einnig þrjú fyrir Skanderborg.

Þá mættust einnig Fredericia og AaB en þeim leik lauk á tölunum 23-23. Hannes Jón Jónsson skoraði fimm mörk fyrir fyrrnefnda liðið, Fannar Þorbjörnsson skoraði tvö og Gísli Kristjánsson eitt.

Fredericia er í öðru sæti deildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki. Skanderborg er í næstneðsta sæti deildarinnar og TMS í því neðsta. Stigin úr jafntefli liðanna í gær voru þeirra fyrstu á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×