Handbolti

Snorri skoraði sjö mörk

Snorri Steinn Guðjónsson
Snorri Steinn Guðjónsson

Þrír leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 7 mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 þegar GOG vann auðveldan útisigur á botnliði Skandeborg. Sigurður Eggertsson skoraði eitt mark fyrir heimamenn.

Þá skoraði Vignir Svavarsson 5 mörk fyrir Skjern þegar liðið lá 30-25 á útivelli fyrir Viborg. Loks vann Kolding 29-25 sigur á Frederica á heimavelli. Hannes Jón Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Frederica og Fannar Þorbjörnsson 1.

Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk fyrir Ciudad Real sem lagði Aragones 35-29 í spænska handboltanum í gær. Ciudad er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús eftir fimm umferðir. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×