Handbolti

Bjarni með fjögur í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarni Fritzson, leikmaður St. Raphael í Frakklandi.
Bjarni Fritzson, leikmaður St. Raphael í Frakklandi.

Bjarni Fritzson skoraði þrjú mörk fyrir St. Raphael í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Liðið bar sigurorð af Villefranche, 34-31.

Bjarni skoraði þrjú mörk úr sjö skotum utan af velli og nýtti eina vítið sem hann tók.

St. Raphael er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex leiki. Chambéry er á toppnum með fullt hús stiga eftir fimm leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×