Handbolti

Sigurður með fimm og Sturla eitt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurður Eggertsson í leik með Val á síðasta tímabili.
Sigurður Eggertsson í leik með Val á síðasta tímabili.

Tvö Íslendingalið mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Århus vann fjögurra marka sigur á Skanderborg, 26-22.

Sturla Ásgeirsson skoraði eitt mörk fyrir Århus í leiknum en Sigurður Eggertsson var næstmarkahæstur sinna manna í Skanderborg með fimm mörk.

Århus er nú í öðru sæti deildarinnar með tíu stig eftir sjö leiki, einu stigi á eftir FCK sem á leik til góða. FCK mætir einmitt TMS á útivelli í dag.

Skanderborg er í næstneðsta sæti deildarinnar með einungis eitt stig eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×