Handbolti

22 marka sigur Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad í Meistaradeild Evrópu.
Ólafur Stefánsson í leik með Ciudad í Meistaradeild Evrópu. Mynd/Vilhelm

Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk þegar Ciudad Real vann risasigur á Teka Cantabria í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær.

Lokatölur leiksins voru 46-24 en staðan í hálfleik var 22-14.

Árni Þór Sigtryggsson skoraði eitt mark þegar Granollers lá á útivelli fyrir Ciudad de Logrono, 28-25.

Ciudad Real er enn langefst í deildinni með fjórtán stig eftir sjö leiki. Granollers er í þrettánda sæti með fjögur stig eftir sjö leiki.

Í dag mæta Sigfús Sigurðsson og félagar í Ademar Leon í heimsókn til Barcelona sem situr í öðru sæti deildarinnar. Ademar Leon er í því fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×