Handbolti

FCK heldur sigurgöngunni áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk í dag. Nordic Photos / Getty Images

FCK er enn taplaust á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fimm marka sigur á GOG Svendborg í dag.

Leiknum lauk 28-23 en FCK hefur unnið sjö af átta leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Arnór Atlason komst ekki á blað hjá FCK í dag.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fimm mörk fyrir GOG í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson þrjú.

GOG er sem stendur í fimmta sæti deildarinnar með níu stig eftir átta leiki. Liðið er sex stigum á eftir FCK. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×