Handbolti

Ragnar með stórleik og skoraði tólf

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar fór á kostum í gær.
Ragnar fór á kostum í gær. Nordic Photos / Getty Images

Ragnar Óskarsson skoraði tólf mörk í sigri USAM Nimes, 35-31, á Villefranche á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Ragnar skoraði úr átta af þrettán skotum sínum utan af velli og nýtti fjögur af fimm vítaskotum sínum.

Nimes komst með sigrinum upp í 4.-5. sæti deildarinnar en liðið er með átta stig eftir sjö leiki.

Chambery er á toppnum með tólf stig.

Hitt Íslendingaliðið í deildinni, St. Raphael, er við hlið Nimes í töflunni en á leik til góða í dag er liðið mætir Ivry í dag - gamla félagi Ragnars.

Ragner er langmarkahæstur í deildinni en hann hefur skorað 67 mörk í sjö leikjum, eða 9,6 að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×