Handbolti

Stórsigur GOG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG í dag. Nordic Photos / AFP
GOG Svendborg vann í dag tólf marka sigur á Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, 37-25, á útivelli.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk í leiknum og var næstmarkahæsti leikmaður GOG í leiknum. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú mörk.

Frederik Petersen skoraði tólf mörk fyrir GOG í leiknum.

FCK er sem fyrr á toppi deildarinnar með sautján stig eftir tíu leiki. GOG er í því fjórða með þrettán stig eftir jafn marga leiki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×