Handbolti

Valdimar með tvö í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdimar Þórsson, leikmaður HK Malmö í Svíþjóð.
Valdimar Þórsson, leikmaður HK Malmö í Svíþjóð. Mynd/Rósa

Valdimar Þórsson skoraði tvö mörk fyrir HK Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið tapaði á útivelli fyrir H43, 25-24.

Malmö hafði eins marks forystu í hálfleik, 13-12, en það dugði ekki til. Guðlaugur Arnarsson komst ekki á blað í leiknum.

Malmö er nú í ellefta sæti deildarinnar með sjö stig eftir tólf leiki. H43 er í fjórða sæti deildarinnar með fimmtán stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×