Handbolti

GOG í bikarúrslit í 12. sinn

Ásgeir Örn skoraði 7 mörk fyrir GOG um helgina
Ásgeir Örn skoraði 7 mörk fyrir GOG um helgina

Íslendingalið GOG Svendborg tryggði sér um helgina sæti í bikarúrslitaleiknum í danska handboltanum með því að leggja Silkeborg 31-27 í undanúrslitum. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 7 mörk fyrir GOG og Snorri Steinn Guðjónsson 3.

Það verða bikarmeistarar Kolding sem verða mótherjar GOG í úrslitunum en liðið lagði Frederica 26-24 í undanúrslitum þar sem Hannes Jón Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Frederica og Gísli Kristjánsson eitt.

Úrslitaleikurinn fer fram þann 29. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×