Handbolti

Þýskaland vann Svíþjóð í æfingaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Holger Glandorf skoraði sex mörk fyrir Þýskaland í kvöld.
Holger Glandorf skoraði sex mörk fyrir Þýskaland í kvöld. Nordic Photos / Bongarts

Svíar og Þjóðverjar mættust í kvöld í æfingaleik í Skövde í Svíþjóð. Þjóðverjar fóru með sigur af hólmi, 34-28.

Leikurinn var sá fyrri af tveimur á milli þjóðanna en hinn leikurinn fer fram á sunnudag í Halmstad.

Bæði lið undirbúa sig að kappi fyrir EM í Noregi sem fer fram í janúar næstkomandi.

Holger Glandorf og Florian Kehrmann skoruðu sex mörk hver fyrir Þýskaland en markahæstur hjá Svíum var Kim Andersson með átta mörk.

Nicklas Grundsten og Fredrik Petersen skouðu fimm mörk hver fyrir Svía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×