Handbolti

Nimes tapaði án Ragnars

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar í leik í frönsku úrvalsdeildinni.
Ragnar í leik í frönsku úrvalsdeildinni. Nordic Photos / AFP

Íslendingaliðin USAM Nimes og St. Raphael töpuðu sínum leikjum í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Nimes tapaði á útivelli fyrir Dunkerque, 29-26, en fyrrnefnda liðið lék án Ragnars Óskarssonar sem á við meiðsli að stríða.

Þá skoraði Bjarni Fritzson tvö mörk er liðið tapaði fyrir toppliði Montpellier á heimavelli, 26-25.

Nimes er nú í sjöunda sæti deildarinnar með fjórtán stig en St. Raphael er í því níunda með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×