Handbolti

Norðmenn og Rússar í úrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Norðmenn fagna sigrinum á Þjóðverjum í dag.
Norðmenn fagna sigrinum á Þjóðverjum í dag. Nordic Photos / AFP

Noregur og Rússland tryggðu sér í dag sæti í úrslitum heimsmeistarakeppni kvenna sem fer fram í Frakklandi.

Norðmenn unnu Þjóðverja í undanúrslitum í dag, 33-30, og Rússar unnu Rúmena með tíu marka mun, 30-20.

Þýskaland og Rúmenía munu því eigast við í leik um þriðja sætið.

Á morgun fara einnig fram leikir um 5.-8. sætið á mótinu. Suður-Kórea og Frakkland eigast við um fimmta sætið og Angóla og Ungverjaland um sjöunda sætið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×