Handbolti

Rússar heimsmeistarar í handbolta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rússar fagna heimsmeistartitlinum í dag.
Rússar fagna heimsmeistartitlinum í dag. Nordic Photos / AFP

Rússar urðu í dag heimsmeistarar í handbolta eftir sigur á Norðmönnum í úrslitaleik á HM kvenna í Frakklandi í dag.

Rússland vann fimm marka sigur, 29-24, eftir að staðan í hálfleik var 16-12, Rússum í vil.

Þýskaland náði í bronsið eftir sigur á Rúmeníu í spennandi leik, 35-35. Rúmenar voru með sjö marka forystu í hálfleik, 18-11.

Heimamenn lentu í fimmta sæti eftir sigur á Suður-Kóreu í morgun, 26-25 og Angóla í sjöunda sæti eftir sigur á Ungverjalandi, 37-36. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×