Handbolti

Loksins sigur hjá HK Malmö

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdimar Þórsson skoraði átta mörk í kvöld.
Valdimar Þórsson skoraði átta mörk í kvöld. Mynd/Rósa

Sænska úrvalsdeildarliðið HK Malmö vann í kvöld sinn fyrsta sigur í síðustu ellefu deildarleikjum í Svíþjóð er liðið vann mikilvægan sigur á Trelleborg, 36-28.

Valdimar Þórsson fór á kostum í leiknum og skoraði átta mörk. Guðlaugur Arnarsson skoraði tvö mörk.

HK Malmö hafði sætaskipti við Trelleborg með sigrinum og er nú í þriðja neðsta sæti deidarinnar með níu stig í sautján leikjum. Trelleborg er einnig með níu stig en mun lakara markahlutfall. Liðið á hins vegar leik til góða.

Hitt Íslendingaliðið í deildinni, Sävehof, er í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×