Handbolti

Valdimar með sjö í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Valdimar Þórsson, leikmaður HK Malmö.
Valdimar Þórsson, leikmaður HK Malmö. Mynd/Rósa

Valdimar Þórsson skoraði sjö mörk fyrir HK Malmö sem tapaði í dag fyrir Guif í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Guðlaugur Arnarsson skoraði eitt mark í leiknum fyrir Malmö sem er með níu stig eftir átján leiki í næstneðsta sæti deildarinnar.

Sävehof, lið Hreiðars Guðmundssonar, vann hins vegar góðan sigur á Alingsås á heimavelli í dag, 26-22.

Sävehof er í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×