Menning

Hver er tina Brown?

Tina Brown fæddist í Maidenhead á Englandi 1953. Hún fékk snemma áhuga á skrifum og vann meðal annars leikritasamkeppni The Sunday Times árið 1973. Hún þótti ákaflega snjall blaðamaður og varð fræg á Bretlandi þegar hún fór að umgangast menn á borð við Dudley Moore og Auberon Waugh.



Hún hætti þó að skrifa leikrit og fór að sinna blaðaskrifum fyrir The Sunday Times en þar kynntist hún núverandi eiginmanni sínum, Sir Harold Evans. Brown stofnaði tímaritið Tadler og vonaðist til að geta sameinað pólitík og afþreyingu í eitt en hafði ekki þolinmæðina sem þurfti og flutti til New York. Þar var hún ráðin í skamman tíma á Vanity Fair en að endingu fór svo að Brown var ráðin ritstjóri blaðsins árið 1984. Átta árum síðar var Brown síðan fengin til að ritstýra The New Yorker. Lengi vel stóð mikill styr um Brown og töldu margir af lesendum blaðsins að hún hefði eyðilagt það. Hún hætti árið 1998 og stofnaði blaðið Talk sem vakti mikla lukku fyrir ferska nálgun á umræðuefnin en útgáfu þess var hætt eftir hryðjuverkaárásirnar í New York 11. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.