Handbolti

Þýski: Jafntefli hjá Magdeburg og Nordhorn

Abati var atkvæðamestur í liði Magdeburg
Abati var atkvæðamestur í liði Magdeburg Getty Images

Magdeburg og Nordhorn gerðu jafntefli, 30-30 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Magdeburg, sem eiga í mjög jafnri toppbaráttu, leiddu með 6 mörkum í hálfleik, 16-10 en glopruðu leiknum niður á síðustu mínútunum. Franski reynsluboltinn Joel Abati var markahæstur í liði Magdeburg með 7 mörk, næstur honum kom Stephan Kretzschmar með 5. Hjá Nordhorn var Tékkinn Jan Filip allt í öllu, hann skoraði 9 mörk.

Magdeburg eru í fjórða sæti í deildinni með 38 stig, fjórum stigum á eftir Kiel sem eru efstir. Nordhorn blanda sér líka í toppbaráttuna, eru nú aðeins tveimur stigum á eftir Magdeburg, með 36 stig í sjötta sæti.

Staða efstu liða:

1. Kiel - 42 stig eftir 24 leiki

2. Hamburg - 40 stig eftir 24 leiki

3. Flensburg - 39 stig eftir 25 leiki

4. Magdeburg - 38 stig eftir 24 leiki

5. Gummersbach - 38 stig eftir 24 leiki

6. Nordhorn - 36 stig eftir 24 leiki




Fleiri fréttir

Sjá meira


×