Enski boltinn

Græddu vel á golftilþrifum Bellamy

NordicPhotos/GettyImages

Það er sannarlega ekkert nýtt undir sólinni þegar kemur að veðbönkum í Bretlandi og nokkrir stuðningsmanna Liverpool högnuðust vel í gærkvöldi þegar þeir veðjuðu á leik Barcelona og Liverpool í Meistaradeildinni.

Stuðningsmennirnir lögðu þar með undir óuppgefna upphæð á það að Craig Bellamy myndi fagna með golfsveiflu ef hann myndi skora gegn Barcelona og það stóð eins og stafur á bók. Líkurnar á þessu voru metnar 100 á móti einum hjá veðbankanum William Hill og því má reikna með því að stuðningsmennirnir hafi orðið sér út um dágóða summu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×