Innlent

Dæmdur fyrir að vera með dóp í fangaklefa

MYND/Stefán

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir að hafa haft í tvígang fíkniefni í klefa sínum. Fangaverðir fundu efnin við leit í klefanum.

Í fyrra tilvikinu fannst lítilræði af hassi og tóbaksblönduðu kannabisefni en í síðara tilvikinu fannst amfetamín, hass og tóbaksblandað kannabisefni. Maðurinn neitaði að hafa átt mestan hluta fíkniefnanna en viðurkenndi að hafa fengið sér eina jónu til að halda geðheilsu.

Þótti framburður hans ótrúverðugur og var hann því sakfelldur fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn á á að baki langan brotaferil, allt frá árinu 1979. Hefur hann níu sinnum hlotið óskilorðsbundna fangelsisdóma frá þeim tíma, síðast árið 2004.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×