Handbolti

FCK deildarmeistari í Danmörku

Arnór Atlason og félagar í FCK tryggðu sér efsta sætið í dönsku deildinni í dag
Arnór Atlason og félagar í FCK tryggðu sér efsta sætið í dönsku deildinni í dag Mynd/Birkir Baldvinsson
Íslendingalið FCK í Danmörku tryggði sér í dag deildarmeistaratitilinn í handbolta þegar liðið lagði meistara Kolding í næst síðustu umferð deildarinnar 35-31. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir FCK og Gísli Kristjánsson eitt. FCK mætir Viborg í úrslitakeppni fjögurra efstu liðanna um meistaratitilinn, en hin undanúrslitarimman verður milli Kolding og GOG.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×