Enski boltinn

Keane náði ekki að skora í fyrsta leik sínum

Keane lék sinn fyrsta leik með Liverpool í gær
Keane lék sinn fyrsta leik með Liverpool í gær NordcPhotos/GettyImages

Nýliðarnir Robbie Keane og David Ngog voru saman í framlínu Liverpool í gærkvöld þegar liðið gerði 0-0 jafntefli við Villarreal í æfingaleik á Spáni.

Keane fékk besta færi Liverpool en náði ekki að nýta það. Honum var skipt af velli í hálfleik, en fyrsti leikur hans fyrir félagið féll í skuggann af mótttökunum sem spænsku landsliðsmennirnir úr sitt hvoru liðinu fengu þegar þeir mættu til leiks.

Spánverjarnir hylltu leikmennina sem unnu sigur á EM í sumar, en fjórir þeirra leika með Liverpool, þeir ose Reina, Alvaro Arbeloa, Xabi Alonso og Fernando Torres - og þrír með Villarreal - Marcos Senna, Santi Cazorla og Joan Capdevila.

Steven Gerrard lék með liði Liverpool á ný eftir meiðsli, en að öðru leyti tefldi Rafa Benitez fram nokkuð ungum leikmönnum í gær, sérstaklega í síðari hálfleik.

Þeir Daniel Pacheco og Krisztian Nemeth þóttu þannig standa sig vel í sókninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×