Handbolti

Fullt hús stiga hjá Sävehof

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hreiðar Guðmundsson átti góðan leik í gær.
Hreiðar Guðmundsson átti góðan leik í gær.

Sävehof hefur byrjað vel í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta og unnið tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Í gær vann liðið tveggja marka sigur á IFK Skövde, 28-26, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Hreiðar Guðmundsson lék allan leikinn í marki Sävehof og varði tólf skot, þar af tvö víti.

Á mánudaginn vann liðið stórsigur á Ystad á útivelli, 31-23. Hreiðar lék ekki með Sävehof í þeim leik.

Annarri umferð deildarinnar lýkur í kvöld en þó nokkur lið eru enn ósigruð í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×