Del Piero og Trezeguet verðlaunaðir í kvöld 17. september 2008 16:47 Del Piero og Trezeguet hafa leikið saman í framlínu Juventus síðan árið 2000 NordicPhotos/GettyImages
Ítalska stórveldið Juventus spilar í kvöld sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu í tvö ár eftir að hafa verið fellt niður í B-deildina í kjölfar hneykslismálsins stóra á Ítalíu. Claudio Ranieri þjálfari hefur tilkynnt að gömlu refirnir Alessandro del Piero og David Trezeguet verði í í byrjunarliðinu gegn Zenit frá Pétursborg í kvöld, en þeir hafa verið saman í framlínu liðsins meira og minna frá aldamótum. Ranieri segist taka þá félaga fram yfir aðra í kvöld vegna reynslu þeirra, en ekki síður vegna þeirra fórna sem þeir hafa fært fyrir félagið á umbrotatímunum síðustu ár. "Við erum með marga nýja leikmenn í okkar röðum, en við erum líka með reynslubolta sem þekkja það að spila svona leiki - leikmenn sem hafa markað spor í sögu félagsins," sagði Ranieri og hrósaði sóknarmönnum sínum. "Reynsla þeirra Trezeguet og del Piero hafði sitt að segja þegar ég valdi byrjunarliðið, en ég valdi þá ekki síður vegna þess sem þeir hafa fórnað fyrir félagið. Þeir voru sviptir sæti í Evrópukeppni og efstu deild á Ítalíu, en þeir héldu tryggð við félagið og komu því aftur á meðal þeirra bestu með vinnu sinni. Ég ber gríðarlega virðingu fyrir þeim og því ákvað ég að láta þá spila," sagði Ranieri.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Sjá meira