Enski boltinn

Adebayor tryggði Arsenal sigur á Real Madrid

Adebayor skorar úr vítaspyrnunni
Adebayor skorar úr vítaspyrnunni NordcPhotos/GettyImages

Emirates mótinu í knattspyrnu lauk í Lundúnum í dag. Þýska liðið Hamburg stóð uppi sem sigurvegari mótsins eftir 3-0 sigur á Juventus í dag en Arsenal vann 1-0 sigur á Real Madrid þar sem Emmanuel Adebayor stakk upp í áhorfendur sem bauluðu á hann í gær og skoraði sigurmarkið úr víti.

Ivica Olic skoraði tvívegis fyrir Hamburg í sigrinum á Juventus og Paolo Guerrero skoraði fyrsta mark leiksins og fullkomnaði þar með endurkomu Martin Jol á Emirates, en fyrrum Tottenham stjórinn átti sjaldnast góðu gengi að fagna á þessum velli eða Highbury.

Eins og til að strá salti í sárin fyrir stuðningsmenn Real í tapinu gegn Arsenal varð miðjumaðurinn Wesley Sneijder fyrir því óláni að meiðast á hné eftir viðskipti sín við Abou Diaby og óttast er að meiðsli hans séu alvarleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×