Enski boltinn

Nýr samningur í smíðum fyrir Drogba

NordcPhotos/GettyImages

Framherjinn Didier Drogba mun væntanlega skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Chelsea sem mun binda enda á vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu.

Fílstrendingurinn stóri hefur verið orðaður við félög eins og Barcelona og AC Milan, en hann virðist vera hrifinn af því sem Luiz Scolari er að gera síðan hann tók við liðinu og er nú vongóður um að skrifa undir nýjan samning.

"Ég er nokkuð viss um að viðræður mínar við Chelsea muni skila góðri niðurstöðu varðandi framtíðina," sagði Drogba í samtali við Sunday Mirror.

Drogba á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum við Chelsea.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×