Handbolti

Arnór skoraði fjögur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Atlason fagnar marki með íslenska landsliðinu.
Arnór Atlason fagnar marki með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
FC Kaupmannahöfn tapaði í dag fyrir þýska stórliðinu HSV Hamburg í Meistaradeild Evrópu í handbolta á heimavelli, 34-31.

Arnór Atlason skoraði fjögur mörk fyrir FCK en Guðlaugur Arnarsson komst ekki á blað.

Staðan í hálfleik var 13-12, Þjóðverjunum í vil en þeir dönsku náðu að minnka muninn í eitt mark þegar þrjár mínútur voru eftir en nær komust þeir ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×