Enski boltinn

Saha til Everton

NordicPhotos/GettyImages

Everton hefur gengið frá tveggja ára samningi við franska framherjann Louis Saha hjá Manchester United. Saha hefur aldrei náð sér almennilega á strik síðan hann gekk í raðir United árið 2004, en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða.

Þá er það að frétta af Everton að beiðni Nígeríumannsins Obinna um atvinnuleyfi á Englandi hefur verið hafnað og því mun vængmaðurinn ekki ganga í raðir Everton eins og til stóð.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×