Enski boltinn

Torres frá í tvær til þrjár vikur

Elvar Geir Magnússon skrifar

Liverpool hefur staðfest að sóknarmaðurinn Fernando Torres verði frá í tvær til þrjár vikur vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut gegn Aston Villa í gær.

Torres fór meiddur af velli í fyrri hálfleik og þurfti að draga sig út úr spænska landsliðshópnum sem mætir Bosníu og Armeníu í undankeppni HM.

Torres mun missa af leikjum Liverpool gegn Manchester United í ensku deildinni og Marseille í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×