Enski boltinn

Keegan valtur í sessi hjá Newcastle?

NordicPhotos/GettyImages

Kevin Keegan mætti ekki til að stýra æfingu Newcastle í morgun eftir fund með stjórn félagsins í gær. Breskir fjölmiðlar gera því skóna að hann sé valtur í sessi hjá félaginu.

Keegan hefur stýrt Newcastle síðan í janúar en undir hans stjórn hefur liðið aðeins unnið sex af 21 leik. Liðið steinlá 3-0 fyrir Arsenal í síðasta deildarleik, en hefur þar fyrir utan náð þokkalegum úrslitum í upphafi leiktíðar - þar á meðal jafntefli við meistara Manchester United.

Breskir fjölmiðlar segja að Keegan sé ósáttur við leikmannakaup Newcastle í sumar og orðrómur er á kreiki um að hann muni fljótlega láta af störfum hjá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×