Enski boltinn

Framtíð Keegan í óvissu - Hefur ekki verið rekinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kevin Keegan.
Kevin Keegan.

Framtíð Kevin Keegan sem knattspyrnustjóri Newcastle er í mikilli óvissu. Samkvæmt heimildum enskra fjölmiðla er Keegan hættur hjá félaginu. Stjórn Newcastle hefur hinsvegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem sagt er að hann hafi ekki verið rekinn.

Segir að Keegan sé mikilvægur fyrir Newcastle og stjórnin vilji halda honum. Í yfirlýsingunni er hinsvegar ekkert minnst á það hvort Keegan hafi hætt sjálfur sem knattspyrnustjóri félagsins eins og heimildir enskra miðla herma.

Keegan er víst virkilega ósáttur við hvernig stjórn Newcastle hefur gripið fyrir hendur hans í leikmannakaupum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×