Enski boltinn

McBride kominn heim

Elvar Geir Magnússon skrifar
Brian McBride hefur skrifað undir samning við Chicago Fire í bandarísku deildinni.
Brian McBride hefur skrifað undir samning við Chicago Fire í bandarísku deildinni.

Bandaríski sóknarmaðurinn Brian McBride er kominn heim og hefur samið við Chicago Fire sem leikur í MLS-deildinni. McBride er 36 ára en hann samdi við Fire út tímabilið.

Hann hefur undanfarin ár leikið í ensku úrvalsdeildinni en yfirgaf herbúðir Fulham nú í byrjun sumars. Hann mun leika með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×