Enski boltinn

Ronaldo á leið til Madrid í næstu viku?

AFP

Spænska blaðið AS hefur eftir Cristiano Ronaldo í dag að hann ætli sér að krefjast þess að fá að fara til Real Madrid þegar hann kemur til fundar við forráðamenn Manchester United eftir sumarfrí.

Ronaldo er í Portúgal sem stendur eftir að hafa verið í fríi í Los Angeles í Bandaríkjunum, en spænska blaðið segir að hann ætli að heimta sölu í næstu viku þegar hann snýr til Englands.

"Það er allt í fína lagi hjá mér. Ég fer til Englands í næstu viku og þar ætla ég að segja forráðamönnum United að ég vilji spila með Real Madrid - og að ég ætli ekki að miðla málum," var haft eftir Portúgalanum.

Blaðið segir að umræddur fundur muni fara fram næsta þriðjudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×