Enski boltinn

Rooney yfirheyrður af lögreglu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Wayne Rooney og knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson.
Wayne Rooney og knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson.

Wayne Rooney hefur verið yfirheyrður af lögreglunni vegna ásakana um að hafa hrækt á blaðaljósmyndara. Atvikið á að hafa átt sér stað á þriðjudagskvöld.

Rooney var ásamt unnustu sinni, Coleen, að yfirgefa veitingastað þegar að þeim kom ágengur ljósmyndari. Lögreglumaður veitti Rooney tiltal en handtók leikmanninn ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×