Enski boltinn

Chelsea snýr sér að Diego

Elvar Geir Magnússon skrifar
Diego fagnar marki fyrir Werder Bremen.
Diego fagnar marki fyrir Werder Bremen.

Forráðamenn Chelsea virðast hafa sætt sig við að fá ekki Robinho frá Real Madrid. Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa þeir snúið sér að öðrum brasilískum leikmanni, Diego hjá Werder Bremen.

Diego er 23 ára sókndjarfur miðjumaður sem á 38 landsleiki að baki fyrir brasilíska landsliðið. Hann hefur leikið með Werder Bremen í Þýskalandi síðan 2006 og skorað 26 mörk í leikjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×