Sport

Federer fánaberi Svisslendinga

NordcPhotos/GettyImages

Tennisleikarinn Roger Federer verður þess heiðurs aðnjótandi í annað sinn á ferlinum að verða fánaberi Svisslendinga á Ólympíuleikum í Peking um næstu helgi.

Svo skemmtilega vill til að athöfnin ber upp á 27. afmælisdag kappans, sem hefur verið í sérflokki í tennisheiminum undanfarin ár.

"Þetta er mikill heiður fyrir mig og ekki síðra að þetta skuli bera upp á afmælisdaginn," sagði Federer ánægður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×