Enski boltinn

Drogba missir af fyrsta leik Chelsea

NordcPhotos/GettyImages

Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, segir að framherjinn Didier Drogba muni líklega missa af fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni þann 17. ágúst og mögulega öðrum leik liðsins gegn Wigan.

Drogba er enn að jafna sig eftir hnéuppskurð og í samtali við BBC lét Scolari hafa eftir sér að hann reiknaði með Drogba inn í liðið fyrir leikinn gegn Tottenham þann 31. ágúst. Það sé þó erfitt að segja til um það.

"Það er ómögulegt að segja til um það hvenær menn ná sér af hnémeiðslum, en Drogba mun ekki spila með okkur fyrr en hann nær sér að fullu," sagði Scolari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×