Erlent

Tala látinna í Kína gæti farið yfir 50 þúsund

Óli Tynes skrifar
Konu bjargað úr húsarústum.
Konu bjargað úr húsarústum. MYND/AP

Kínverska fréttastofan Xinhua sagði í dag að tala látinna í jarðskjálftanum mikla gæti farið yfir 50 þúsund.

Fréttastofan hefur þetta eftir talsmanni björgunarmiðstöðvarinnar. Yfir 20 þúsund dauðsföll hafa þegar verið skráð eftir jarðskjálftann sem var 7.9 á Richter kvarða.

Tugþúsundir til viðbótar eru sagðir vera enn grafnir í húsarústum í Sichuan héraði.

Stjórnvöld í Kína ákváðu í dag að senda 30 þúsund hermenn til viðbótar til björgunarstarfa.

Þar með eru samtals 80.000 hermenn að störfum á svæðinu.

Einnig verða sendir tugir þyrlna og stórvirk vinnutæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×